Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,8%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan júní 2018 er 139,2 stig sem er 0,1% hækkun frá fyrri mánuði.

Innflutt efni hækkaði um 0,4%. Vísitalan gildir í júlí 2018.