Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan júlí 2013 er 118,7 stig sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði, að því er kemur fram á vef Hagstofunnar.

Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,2%, sem skýrir lækkun vísitölunnar. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,1%.