Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2,9% í september og stendur vísitalan nú í 203,3 stigum, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 252,4 stig, sem er hækkun um 1,6% hækkun á milli mánaða. Þá var vísitala fyrir stóriðju 203,9 stig í september sem var 3,3% hækkun frá fyrri mánuði. Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,5% á sama tíma og hækkaði vísitala fyrir annan iðnað um 7,4%.

Þá hækkaði vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands um 2,7% á milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 3,0%.

Hagstofan segir að frá í september í fyrra hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 1,9% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 5,2%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 2,6% en matvælaverð hefur hækkað um 2,2%.