Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands var vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu 456,5 stig í mars 2016 og hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan því hækkað um 1,8%. Vísitalan hefur jafnframt hækkað um 7,4% síðustu tólf mánuði.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði. Áhugasamir geta kynnt sér gögn Þjóðskrár nánar hér.