Vísitala neysluverðs í ágúst hækkaði um 0,34% frá júlí, og er 264,0 stig, vísitala neysluverðs án húsnæðis er 243,7 stig og hefur hækkað um 0,28% frá því í júlí, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Verð á dagvörum hækkaði um 1,8% (vísitöluáhrif 0,13%) og viðhaldsliður eigin húsnæðis hækkaði um 3,5% (0,13%).

Sumarútsölur standa enn yfir og lækkaði verð á fötum og skóm um 3,4% (-0,15%). Verð á eigin húsnæði lækkaði um 0,1% (-0,01%) þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,09% og af hækkun vaxta 0,08%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,0% sem jafngildir 8,1% verðbólgu á ári (7,0% fyrir vísitöluna án húsnæðis), segir í tilkynningunni.

Vísitala neysluverðs í ágúst gildir til verðtryggingar í september 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.213 stig fyrir september 2006, segir Hagstofan.