Breytingar á skattkerfinu eru ekki líklegar til að heimta tekjur af skilvirkni og munum við því standa uppi í verri stöðu en ella, þar sem tekjurnar sem vænst var eftir munu ekki skila sér í ríkissjóð.

Þetta kemur fram í athugasemdum Viðskiptaráðs við fyrirhuguðum skattabreytingum ríkisstjórnarinnar. Á vef Viðskiptaráðs segir að ráðið hafi fylgst náið með aðgerðum stjórnvalda á sviði ríkisfjármála á undanförnum vikum og mánuðum, sem margar hverjar séu afar misráðnar.

„Bæði fjárlagafrumvarp næsta árs og nýleg frumvörp á sviði skattlagningar bera með sér ríka niðurskurðarfælni af hálfu stjórnvalda – á tímum þegar lítið svigrúm er til slíkra viðhorfa,“ segir á vef Viðskiptaráðs.

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar ásamt því að mæta fyrir efnahags- og skattanefnd Alþingis. Þar gagnrýnir ráðið vinnubrögð Alþingis og segir mikinn skort hafa verið á samráði við hagsmunaaðila. Einnig sé fyrirætlun ríkisstjórnarinnar um að keyra frumvarpið í gegn á þeim litla tíma sem er til áramóta gangrýnisverð.

„Í aðgerðum sínum taka stjórnvöld ekki tillit til þess að veruleg aðlögun hefur þegar átt sér stað hjá heimilum og fyrirtækjum landsins,“ segir á vef ráðsins.

„Þetta sést best á umtalsverðum samdrætti í einkaneyslu, meira en 10 þúsund töpuðum störfum, hruni í fjárfestingu einkaaðila, fjöldagjaldþrotum fyrirtækja og lækkandi launum á almennum vinnumarkaði. Um leið og þessum hópi er ætlað að bera auknar byrðar þá stefnir ríkið eingöngu að því að taka lítil skref í átt til niðurskurðar og aðhalds, þrátt fyrir verulega þenslu í útgjöldum þess undanfarin ár.“

Sjá nánar á vef Viðskiptaráðs.