Útflutningsráð hyggst standa fyrir viðskiptaráðstefnu og ferð viðskiptasendinefndar til Bretlands, dagana 24. til 28. maí næstkomandi. Viðskiptaráðstefnan verður haldin fyrir hádegi þann 25. maí í Lancaster House í London. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun setja ráðstefnuna og flytja ávarp.

Samkvæmt frétt á vef Útflutningsráðs er enn hægt að bóka sig í ferðina.