Rekstrarhagnaður Flögu Group [ FLAGA ] nam 204 þúsund dollurum (16 milljónir króna) í samanburði við rekstrartap að fjárhæð 514 þúsund dollara á sama tímabili fyrra árs.

Tekjur námu 8,7 milljónum dollurum á fyrsta ársfjórðungi sem er 21% aukning miðað við sama tímabil fyrra árs.

Framlegð nam 5,1 milljón dollurum á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 4,4 milljónir dollara á sama tímabili fyrra árs sem er 15% aukning.

EBITDA framlegð á fyrsta ársfjórðungi nam 441 þúsund dollara samanborið við 202 þúsund dollara í neikvæða EBITDA framlegð á fyrra ári.

Rekstrarkostnaður á fyrsta ársfjórðungi nam 5,2 milljónum dollara samanborið við 4,9 milljónir dollara á sama tímabili fyrra árs.

Stefnt er að afskráningu félagsins.