Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1,5 milljarðar króna í fyrra samanborið við tap að fjárhæð 12,8 milljarðar á árinu 2008. Betri afkoma stafar aðallega af mun minna gengistapi en á fyrra ári auk þess sem tekjur af raforkuflutningi hafa aukist samkvæmt heimasíðu félagsins. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 9.331 mkr. samanborið 7.066 mkr. á fyrra ári. Eiginfjárhlutfall í árslok var 11,3% samanborið við 10,5% í lok fyrra árs. Eigið fé í árslok nam 8.321 mkr. samanborið við 7.274 í lok árs 2008. Heildareignir félagsins í árslok námu 73.675 mkr. samanborið við 69.384 mkr. í lok fyrra árs. Heildarskuldir námu 65.354 mkr. samanborið við 62.109 mkr. í lok fyrra árs. Rekstrarhæfi félagsins er mjög gott. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 mun handbært fé frá rekstri standa undir fjárfestingum og afborgunum, auk þess sem gert er ráð fyrir að skuldir muni lækka. Í árslok nam handbært fé 5.864 mkr. Handbært fé frá rekstri nam 7.519 mkr. árið 2009 samanborið við 5.760 mkr. árið 2008.