Vistor tók við dreifingu lyfja fyrir danska lyfjafyrirtækið Lundbeck á íslenskum markaði frá og með 1. janúar en velta þess er áætluð um 140 milljónir íslenskra króna árið 2006.

Vistor starfar við sölu og markaðssetningu á lyfjum og tengdum vörum fyrir heilbrigðismarkaðinn á Íslandi. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 130 og er velta félagsins árið 2005 um 4,4 milljarðar kr. Fyrirtækið leggur áherslu á hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika. Vistor er eini dreifingaraðili lyfja á Íslandi sem hlotið hefur ISO 9001 gæðavottun.