Viðskiptavinir Vodafone á Íslandi munu frá og með 1. janúar greiða mun minna fyrir símtöl í útlöndum en hingað til. Viðskiptavinir félagsins munu þá njóta kjara sem ákveðin voru í reglugerð Evrópusambandsins um verð á reikiþjónustu í aðildarlöndum sambandsins, þótt reglugerðin hafi ekki fengið lagagildi á Íslandi.  Auk þess að gilda í löndum Evrópusambandsins mun sama verð gilda í Sviss, Færeyjum, Grænlandi, Noregi og Lichtenstein.

Í tilkynningu frá Vodafone vegna lækkunarinnar hefur Vodafon frá því reglugerð Evrópusambandsins var samþykkt unnið að því, að tryggja sínum viðskiptavinum sömu kjör og íbúum aðildarlandanna. Reglugerðin kveður á um hámarks heildsöluverð á þjónustunni milli fjarskiptafyrirtækja og hámarks smásöluverð til neytenda, en evrópskum fjarskiptafyrirtækjum er hins vegar ekki verið skylt að selja þjónustu sína á umræddu verði til símafyrirtækja utan Evrópusambandsins. Þess vegna hefur ekki verið hægt að bjóða íslenskum farsímanotendum bestu möguleg kjör á ferðalögum sínum um Evrópu fyrr en nú.