Vodafone braut gegn ákvæðum laga með skráning og notkun lénsins mittfrelsi.is.

Þá er Vodafone bannað að nota vörumerkið Mitt frelsi í markaðssetningu og sem lénanafn.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en stofnunin segir Vodafone hafa brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins og ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Á vef Neytendastofu kemur fram að Síminn hefur átt skráð orðmerkið og orð- og myndmerkið Frelsi hjá Einkaleyfastofu í átta ár og hefur sýnt fram á notkun á vörumerkinu Mitt Frelsi áður en Vodafone fékk skráð lénið.

Þá hefur Síminn einnig fengið Mitt Frelsi skráð sem orðmerki hjá Einkaleyfastofu.

Er það því mat Neytendastofu að réttur Símans til vörumerkisins Mitt Frelsi gangi framar rétti Vodafone.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér