„Fjarskiptum hf. hefur borist stefna þar sem gerð er krafa um bætur vegna tjóns sem einstaklingur telur sig hafa orðið fyrir vegna innbrotsþjófnaðar erlends tölvuhakkara á heimasíðu Vodafone í nóvember 2013 og í kjölfarið dreifingu þjófsins og annarra á hinum stolnu gögnum. Gerð er krafa um skaða- og miskabætur að fjárhæð kr. 8.424.500., auk vaxta og málskostnaðar,"

Þetta segir í tilkynningu sem Fjarskipti sendu Kauphöll Íslands fyrir skemmstu. Segir jafnframt að félagið muni næstu daga meta innihald stefnunnar og taka afstöðu til hennar fyrir dómi.

Efast um bótaskyldu

„Í ljósi málavaxta telja Fjarskipti hf. þó verulegan vafa leika á hvort skilyrði bótaskyldu séu fyrir hendi. Fjarskipti hf. álítur jafnframt, telji dómstólar félagið yfirleitt bótaskylt, líklegt að dæmdar fjárhæðir í þessu eða öðrum hliðstæðum málum, sem boðuð hafa verið, hafi í öllu falli óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Við þetta mat er hliðsjón höfð af óvissu um bótaskyldu sem og dómafordæmum um ákvörðun fjárhæðar miskabóta, umfangi rekstrarins auk þess sem krafan kann að falla undir tryggingaskilmála félagsins. Gerð verður grein fyrir þessari og mögulegum frekari málshöfðunum í skýringum ársfjórðungsuppgjöra eða eftir því sem við getur átt," segir í tilkynningu.