Vöggur Mar Guðmundsson hefur verið ráðinn kerfisstjóri hjá tölvu- og fjarskiptaþjónustfyrirtækinu Davíð og Golíat. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Vöggur hóf störf 1. júní síðastliðinn, en hann hefur áður starfað sem kerfisstjóri og sérfræðingur hjá Íslandssíma, Vodafone og Alterna. Hann mun sinna áframhaldandi þróun á rekstrarumhverfi hýsingalausna hjá fyrirtækinu auk þess að vinna ýmis verkefni tengdum netþjónustu.

Hjá fyrirtækinu starfa ellefu manns, en nýlega hefur það einnig ráðið Jón Kristinn Magnússon í starf forritara og Elínu Maríu Þorvarðardóttur í starf bókara.