iPhone
iPhone
© AFP (AFP)
Apple hyggst kynna nýjan iPhone snjallsíma í september næstkomandi, að því er Bloomberg fréttastofa greinir frá. Síminn verður hraðvirkari en iPhone 4, nýjasta gerð símans, og myndavélin betri.

Þá er fyrirtækið einnig að hanna nýjan gerð af iPad spjaldtölvunni. Skjár næstu útgáfu verður með hærri upplausn en núverandi útgáfa hefur.

IPhone er mest selda vara Apple og voru tekjur af sölu símans um helmingur af heildartekjum félagsins á síðasta ársfjórðungi. Næsta tegund símans verður sú fimmta sem fyrirtækið framleiðir.