Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna segir á Facebook síðu sinni að það hafi verið mikil vonbrigði að flokkarnir fjórir hafi ekki náð að mynda ríkisstjórn.

„Það eru mikil vonbrigði að ekki hafi náðst að mynda ríkisstjórn Vinstri-grænna, Framsóknarflokks, Samfylkingar og Pírata að þessu sinni. Ljóst var frá upphafi að meirihlutinn var naumur og stór verkefni framundan. Málefnalega gengu samræður þessara flokka mjög vel og ég upplifði traust á milli formannanna; mín, Sigurðar Inga, Loga og Þórhildar Sunnu.

Fyrir liggur hins vegar að hinn naumi meirihluti vóg of þungt til að Framsókn treysti sér til að ljúka myndun meirihlutastjórnar. Eftir sem áður er það okkar verkefni að koma á starfhæfri ríkisstjórn fyrir fólkið í landinu, segir Katrín"