Miklar umferðatafir eru nú í Ártúnsbrekku en mörgum flutningabílum með tengivagna hefur verið lagt á götuna skammt frá N1 bensínstöðinni.

Viðmælandi Viðskiptablaðsins sagði bílaröð ná niður á Grensásveg og umferð hreyfast lítið sem ekkert.

Um er að ræða mótmælaaðgerðir flutningsbílstjóra vegna hækkunar á olíuverði.