Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 22,3 milljarða króna og inn fyrir 29,9 milljarða króna fob (32,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob (free on board) verðmæti, voru því óhagstæð um 7,6 milljarða króna, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Í september 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 12,0 milljarða króna á föstu gengi.

Fyrstu níu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 173,2 milljarða króna en inn fyrir 275,4 milljarða króna fob (298,5 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 102,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 75,2 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Verðmæti vöruútflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 11,1 milljarði eða 6,8% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 54,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski, frystum flökum og söltuðum og/eða þurrkuðum fiski en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystri rækju.

Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 21,7% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkunar álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kísiljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla, segir í tilkynningunni.

Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 38,0 milljörðum fob eða 16,0% meira á föstu gengi en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 21,0 milljarð, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 40,1%. Innflutningur hrá- og rekstrarvöru jókst um 29,4%, eða um 16,8 milljarða.

Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 14,4% aukningar, eða um 3,4 milljarða. Innflutningur á neysluvöru, annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 9,2% eða 3,4 milljarða en hverfandi aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Aftur á móti dróst innflutningur á flutningatækjum saman um 13,7%, eða um sjö milljarða, aðallega vegna minni flugvélainnflutnings, segir í tilkynnningunni.