Vöruskiptin voru óhagstæð um 13,4 milljarðar króna í mars, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Í sama mánuði fyrir ári voru vöruskiptin óhagstæð um 6,3 milljarða á föstu gengi.

Alls voru fluttar út vörur fyrir 19,9 milljarðarkróna og inn fyrir 33,3 milljarða í mars.

Í frétt frá Hagstofunni kemur fram að fyrstu þrjá mánuði ársins hafi verið fluttar út vörur fyrir 48,8 milljarða króna en inn fyrir 80,7 milljarða króna fob. Halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam tæpum 32,0 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 15,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 16,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Verðmæti vöruútflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 2,5 milljörðum eða 5,4% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 58% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,6% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,4% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukins álútflutnings.

Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 19,2 milljörðum eða 31,1% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á fjárfestingavöru og hrá- og rekstrarvöru. Á móti kom samdráttur í innflutningi flugvéla.