Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir september var útflutningur fyrir tæpa 50,8 milljarða króna og nam innflutningur 39,6 milljörðum króna.

Vöruskipti við útlönd í september, reiknuð á fob-verðmæti, voru því hagstæð um 11,2 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.