Vöruskipti við útlönd voru hagstæð um 2,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir ágúst. Útflutningur nam 41,8 milljörðum króna og innflutningur nam 39,4 milljörðum króna.

Vöruskiptajöfnuður á fyrstu sjö mánuðum ársins er jákvæður um rúmlega 68 milljarða króna.