Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 63,4 milljarða króna og inn fyrir 55,1 milljarð króna. Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,3 milljarða króna. Í mars 2014 voru vöruskiptin óhagstæð um 6,4 milljarða króna á gengi hvors árs. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar .

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir 165,2 milljarða króna en inn fyrir 164,8 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því hagstæð um 353 milljónir króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um tæpa 3,5 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því rúmlega 3 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.