„Við ætlum til Ameríku á næsta ári,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upp­lýsingafulltrúi Wow air. Stjórnendur flugfélagsins ákváðu fyrir stuttu að hætta við fyrirhugað flug þar sem Isavia hafði ekki úthlutað flugfélaginu nauðsynlega brottfarartíma í Keflavík.

Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, bætir því við í samtali við viðskiptablaðið, að ekki væri hægt að segja til um það hve­nær vélar Wow air fari að fljúga vestur um haf.

„Ég get ekkert sagt um það. en við ætlum til Ameríku,“ segir hann.