Flugfélagið Wow air hefur ákveðið að auka við flugframboð sitt til Bandaríkjanna. Verður nú flogið allan ársins hring bæði til Washington DC og Boston, en í fyrri áætlun var einungis ráðgert að fljúga til Washington frá byrjun júní til loka október. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Einnig verður flogið oftar í viku frá og með 4. júní til Washington og Boston. Flogið verður fimm sinnum í viku til Washington og sex sinnum í viku til Boston. Jómfrúarflug Wow air til Bandaríkjanna verður til Boston þann 27. mars og hefst þá um leið áætlunarflug þangað.

„Þær móttökur sem við höfum fengið frá því við hófum sölu á flugi til Bandaríkjanna hafa verið framar björtustu vonum. Sala beggja vegna Atlantshafsins sem og á Íslandi hefur gengið afar vel og því ákváðum við að auka við framboðið og fljúga allan ársins hring einnig til Washington, D.C. Við erum líka stollt af því að hafa lækkað flugverð til muna til Bandaríkjanna og eflt um leið heilbrigða samkeppni í flugi til og frá Íslandi,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.