Óskar Már Alfreðsson, fasteignasali hjá Domusnova, er launahæstur fasteignasala. Launatekjur hans á síðasta ári námu 1,8 milljónum króna á mánuði.

Í öðru sæti listans er samstarfsfélagi hans, Víðir Arnar Kristjánsson. Hann var einnig með 1,8 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Þórarinn Arnar Sævarsson, fasteignasali hjá RE/MAX, sömuleiðis með 1,8 milljónir króna á mánuði.

22 fasteignsalar eru með yfir eina milljón króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.

Tíu tekjuhæstu fasteignasalarnir:

  1. Óskar Már Alfreðsson, fasteignasali Domusnova - 1,8 milljónir króna
  2. Víðir Arnar Kristjánsson, fasteignasali Domusnova - 1,8 milljónir
  3. Þórarinn Arnar Ævarsson, fasteignasali RE/MAX - 1,8 milljónir
  4. Helgi Jón Harðarson, sölustj., eigandi, Hraunhamar - 1,7 milljónir
  5. Einar Páll Kjærnested, fasteignasali Fasteignas. Mosfellsb. - 1,7 milljónir
  6. Daði Hafþórsson, fasteignasali Eignamiðlun - 1,6 milljónir
  7. Hannes Steindórsson, fasteignasali Lind - 1,5 milljónir
  8. Jason Guðmundsson, fasteignasali Miklaborg - 1,4 milljónir
  9. Arnar Birgisson, frkv.stj. Eignaver - 1,4 milljónir
  10. Þorsteinn Yngvason, fasteignasali RE/MAX - 1,4 milljónir

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði