Kia EV9 rafmagnsbíllinn náði eftirtektarverðum árangri á World Car Awards hátíðinni en bíllinn stóð uppi sem tvöfaldur sigurvegari. Bíllinn var verðlaunaður sem bæði Bíll ársins og Rafmagnsbíll ársins á athöfn sem fór fram í New York 27. mars.

Verðlaun EV9 eru þau fjórðu og fimmtu sem Kia hefur unnið á World Car Awards síðan árið 2020.

Dómnefndin sem taldi EV9 standa upp úr samanstóð af 100 virtum bílablaðamönnum víða að úr heiminum. Nýstárleg hönnun Kia EV9, rúmgóð sjö sæta innrétting og samkeppnishæft verð stóðu upp úr að mati dómnefndar. EV9 bíllinn er byggður á E-GMP undirvagni og er fyrsti Kia-bíllinn sem býður upp á fjórðu kynslóðar rafhlöðutækni.

World Car Awards verðlaunin voru sett á laggirnar árið 2003 og hafa síðan verið rómuð á heimsvísu sem viðmið fyrir hæsta gæðastimpil í bílaiðnaðinum. Á hátíðinni er framúrskarandi hönnun og afrek í ört breytilegum bílaiðnaði gert hátt undir höfði. Fyrir athöfnina í New York í síðasta mánuði hafði Kia þegar unnið þrjú World Car Awards verðlaun.

„Við erum svakalega stolt af því að 2024 EV9 hafi verið útnefndur sem Bíll ársins og Rafmagnsbíll ársins. Þessi sigur er til marks um óbilandi skuldbindingu okkar til að ýta á mörk tækni og framúrskarandi hönnunar. Áframhaldandi velgengni Kia EV9 mun knýja okkur áfram í því að skila af okkur framúrskarandi farartækjum sem endurskilgreina akstursupplifun viðskiptavina um allan heim,“ sagði Ho Sung Song, forseti og forstjóri Kia.

EV9 vann til að mynda Gullna stýrið 2023 í flokki fjölskyldubíla og hlaut nafnbótina North American Utility Vehicle of the Year hjá dómnefnd NACTOY (North American Car of the Year). Þá var EV9 valinn lúxusbíll ársins 2023 á Newsweek Autos verðlaununum.