BL við Sævarhöfða hefur fengið í sölu nýja útgáfu af rafbílnum MG4, sem ber gerðarheitið MG4 Standard Range og er með 51 kWh rafhlöðu og 350 km drægni.

MG4 var upphaflega frumsýndur á Evrópumarkaði um mitt síðasta ár, þar á meðal hér á landi í lúxus-útgáfu. Bíllinn hefur hlotið góðar móttökur og fjölda viðurkenninga víða í Evrópu fyrir þægilega aksturseiginleika og hagstætt verð, einkum í ljósi ríkulegs búnaðar.

Hér er um að ræða rúmgóðan vel búinn fimm manna fjölskyldubíl í millistærðarflokki með flötu gólfi sem veitir aukið rými fyrir farþega og farangur. Vegna lágs þyngdarpunkts, jafnrar þyngdardreifingar og þróaðs fjöðrunarkerfis hefur MG4 sérlega góða aksturseiginleika við mismunandi vegaðstæður.

Meðal öryggisbúnaðar í MG4 Standard Range má nefna skynvæddan hraðastilli, umferðarteppuhjálp, sjálfvirkum neyðarhemlum, rafdrifna handbremsu og loftþrýstingsskynjara auk neyðarakreinastýringar og árekstrarvarnar.

Þá er MG4 Standard Range enn fremur búinn sjálfvirkum aðalljósum og miðstöð sem einnig býður upp á tímastillta forhitun, loftkælingu og fleira, svo fátt eitt sé nefnt.