Ný kynslóð hins sögufræga Land Cruiser, Land Cruiser 250, var frumsýnd í Japan í nótt og mun á næsta ári leysa Land Cruiser 150 af hólmi. Bíllinn er væntanlegur til landsins um mitt ár 2024.

Nýtt útlit Land Cruiser 250 er með greinilegri tilvísun í hefðina og 72 ára sögu þessa bíls sem hófst 1. ágúst 1951 þegar forverinn, Toyota BJ kom fram á sjónarsviðið. Með Land Cruiser 250 mun Toyota viðhalda sögu Land Cruiser sem afburða torfærubíls sem þekktur er fyrir styrk og áreiðanleika. Auk þess býður Land Cruiser 250 upp á öll þau þægindi sem sjálfsögð eru í daglegum akstri.

Land Cruiser 250 er með 2.8l dísilvél, 204 hestöfl, nýrri 8 þrepa skiptingu og nýju rafknúnu aflstýri. Dráttargetan hefur verið aukin í 3.500 kg. og jafnvægisstöng bílsins er nú hægt að stjórna frá mælaborði. 48V Mild Hybrid útgáfa er væntanleg 2025.

Áætlað er að forsala hefjist í október og þá verður sérstök útgáfa, “First Edition” í boði. Þessi útgáfa verður fáanleg með sérstökum litum og framljósum og öðrum útlitseinkennum sem ekki verða í boði með öðrum útfærslum bílsins. Aðeins verða 3.000 eintök framleidd af þessari útgáfu.