Sigrún Kjartansdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi en félagið hefur það hlutverk að efla fagmennsku mannauðsstjórnunar í þágu íslensks atvinnulífs.
Uppruna félagsins má rekja til klúbbs starfsmannastjóra sem stofnaður var á tíunda áratugnum sem síðar þróaðist yfir í félag fyrir alla mannauðsstjóra hér á landi.
Frá árinu 2015 hefur félagið verið fagfélag allra þeirra sem starfa sem mannauðsstjórar eða sérfræðingar við mannauðsmál hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum.
Markmið félagsins er að efla fagmennsku í mannauðsstjórnun á Íslandi með virkri þátttöku í umræðu um mannauðsmál. Félagsmenn eru á þriðja hundrað og fer ört fjölgandi segir í fréttatilkynningu.
Sigrún býr yfir áralangri reynslu af stjórnun og rekstri en hún starfaði lengi sem stjórnandi hjá Íslandsbanka og síðar hjá öðrum fyrirtækjum. Sigrún hefur umfangsmikla reynslu af stjórnun mannauðs í gegnum þau stjórnendahlutverk sem hún hefur sinnt, auk þess hefur hún mikla reynslu af markaðs- og sölumálum, verkefnastjórnun og viðburðarstjórnun.
Hún er viðskiptafræðingur að mennt og er með meistarapróf í mannauðsstjórnun og stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands.
Framkvæmdastjóri sér um daglegan rekstur félagsins og vinnur að eflingu þess í samvinnu við stjórn félagsins.
„Við í stjórn Mannauðs erum virkilega ánægð með að vera búin að fá Sigrúnu í starf framkvæmdastjóra en hún hefur gríðarlega reynslu og þekkingu í þeim málaflokki sem félagsmenn okkar vinna í“ segir Brynjar Már Brynjólfsson formaður félagsins.
Á aðalfundi Mannauðs var ný stjórn félagsins einnig kosin en hana skipa:
- Brynjar Már Brynjólfsson, verkefnastjóri hjá Origo er formaður stjórnar
- Harpa Víðisdóttir, mannauðsstjóri Varðar er varaformaður stjórnar
- Margrét Jónsdóttir, mannauðsstjóri Mountain Guides er gjaldkeri stjórnar
- Hafsteinn Bragason, mannauðsstjóri Íslandsbanka
- Ragna Margrét Norðdahl mannauðsstjóri Símans er meðstjórnandi
- Ásta Bjarnadóttir framkvæmdastjóri mannauðs á Landspítalanum er meðstjórnandi