Valgerður Sigrúnar Vigfúsardóttir og Jóhannes Karl Kárason hafa tekið við stjórnunarstöðum hjá Terra umhverfisþjónustu.

Valgerður Sigrúnar Vigfúsardóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður viðskiptadeildar og leiðir hún deild þjónustu- og viðskiptastjóra. Áður starfaði hún hjá A4 í 17 ár og hefur víðtæka reynslu af sölustýringu. Hjá A4 stýrði hún uppbyggingu húsgagnadeildar og var sölustjóri.

Jóhannes Karl Kárason hefur verið ráðinn sem forstöðumaður akstursþjónustu og leiðir hann daglegum rekstri og skipulagi akstursþjónustu félagsins. Hann kemur frá Samskipum þar sem hann starfaði sem flotastjóri. Þar áður starfaði hann sem framleiðslustjóri hjá Kerecis á Ísafirði.

Guðmundur Páll Gíslason, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Terra:
„Það er nóg framundan hjá Terra umhverfisþjónustu og það er mikill fengur að fá þessa stjórnendur með sína víðfemu reynslu til að taka þátt í frekari vexti Terra umhverfisþjónustu. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa.”