Landsbankinn hyggst bjóða fyrirtækjum upp á færsluhirðingu á næsta ári, bæði í posum og á netinu. Ragnar Einarsson hefur verið ráðinn í nýtt starf forstöðumanns færsluhirðingar bankans, að því er kemur fram í tilkynningu á vef bankans.

Ragnar starfaði áður hjá færsluhirðinum Rapyd þar sem hann stýrði viðskiptasviði félagsins. Þá var hann meðstofnandi og framkvæmdarstjóri íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins SalesCloud sem starfar á markaði með sölu- og afgreiðslukerfi.

Áður stýrði Ragnar m.a. viðskipta- og vöruþróun hjá innlendri færsluhirðingu Borgunar. Hann kom líka að uppbyggingu fjártæknifyrirtækisins Aurs og sat um tíma í stjórn félagsins. Ragnar er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.