Í þessum mánuði endurgreiða Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands 116 ma.kr. af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum.

Fjárhæðin sem endurgreidd er nemur rösklega 20% þeirra lána sem tekin voru hjá AGS og Norðurlöndunum í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS að því er fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Aðgerðin í dag miðar að því að greiða niður lán til skemmri tíma og draga þannig úr kostnaði við gjaldeyrisforðahald. Ákvörðun um endurgreiðslu er tekin með hliðsjón af tiltölulega rúmri lausafjárstöðu ríkissjóðs og Seðlabankans í erlendri mynt næstu misseri.

Erlend skuldastaða þjóðarbúsins lækkar í heild um 6,6% af VLF við þessar breytingar en nettóskuldastaða er óbreytt. Meðfylgjandi er endurgreiðsluferill erlendra lána ríkissjóðs og Seðlabankans. Þar sést að fyrirframgreiðslan léttir mjög á endurgreiðsluferli erlendra lána næstu fjögur árin, eða til ársins 2016.