Talsverð velta hefur verið með hlutabréf VÍS í Kauphöllinni í dag eða upp á 149 milljónir króna. Gengi bréfa félagsins hefur hækkað um 0,09% og stendur það í 11,08 krónum á hlut. Þetta eru mestu viðskiptin með hlutabréf í Kauphöllinni í dag.

Fram kom í uppgjöri VÍS sem birt var í gær að hagnaður félagsins nam tæpum 950 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi sem var um 26% aukning á milli ára. Hagnaður félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2.043 milljónum króna samanborið við 1.746 milljónir á fyrstu níu mánuðum síðasta árs.