Á hluthafafundi 365 hf. sem haldinn var í dag var samþykkt samhljóða að breyta nafni félagsins í Íslensk afþreying hf.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Íslensk afþreying er hlutafélag tveggja eininga, Senu ehf. og EFG ehf. og starfar félagið einkum á vettvangi afþreyingar og skyldrar starfsemi. Gert er ráð fyrir að velta félaganna á þessu ári sé samtals um sex milljarðar króna.

Einnig var á fundinum samþykkt samhljóða að veita stjórn heimild til hækkunar á hlutafé að andvirði þriggja milljarða króna að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta.

Á fundinum var einnig samþykkt samhljóða að fækka stjórnarmönnum félagsins úr fimm aðalmönnum í þrjá.

Á fundinum voru sjálfkjörin í stjórn Ari Edwald, sem mun gegna stjórnarformennsku, Einar Þór Sverrisson og Lára N. Eggertsdóttir og Hildur Sverrisdóttir sem varamaður.

Björn Sigurðsson verður forstjóri Íslenskrar afþreyingar hf.