Hagnaður varð af rekstri Íbúðalánasjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 466 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 20.655 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sjóðsins, sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 8,0%.

Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%.