Tölur um búferlaflutningar hérlendis sýna ótvírætt að árið 2007 var meiri eftirspurn eftir vinnuafli hér á landi en nokkru sinni fyrr og að enn eru engin merki um að slakna sé á í þeim efnum, að mati fjármálaráðuneytisins.

Aðfluttir umfram brottflutta voru 3.352 árið 2007 sem er 1% af íbúafjölda landsins. Þó hefur þróunin verið mismunandi milli einstakra landsvæða. Þannig voru aðfluttir umfram brottflutta milli landa á höfuðborgarsvæðinu 3.257, eða um 1.000 fleiri en árið 2006.

Aðfluttum umfram brottflutta fjölgaði einnig á landsbyggðinni utan Austurlands og var fjölgun vegna þeirra nær 1.300 manns. Þar munar mest um Suðurnes þar sem nettóflutningur nam 340 manns. Á Vesturlandi var munurinn 280 og á Norðurlandi eystra 260. Það er einungis á Austurlandi sem brottfluttir eru fleiri en aðfluttir í flutningum milli landa. Það stafar af því að framkvæmdunum eystra er nær lokið og starfsmenn á vegum hinna erlendu verktaka eru farnir á brott. Mismunur aðfluttra og brottfluttra er 1.453 þrátt fyrir það að rúmlega þúsund manns hafi flust til Austurlands í fyrra frá útlöndum.

Verið að sameina fjölskyldur

Fjármálaráðuneytið bendir á að árið í fyrra er frábrugðið fyrri árum að einu leyti, þ.e. varðandi kynjaskiptingu aðfluttra og brottfluttra. Á árunum 2004 til 2006 voru karlar mun fleiri en konur í hópi aðfluttra eftir að kynjaskipting hafði verið jöfn til margra ára. Konum hefur að vísu fjölgað í hópi aðfluttra en körlunum meira þar til í fyrra. Þá fluttust örlítið færri karlar til landsins en árið 2006 meðan konurnar hafa aldrei verið fleiri.

Ráðuneytið telur þetta benda til þess að vaxandi fjöldi aðfluttra sé að sameina fjölskyldur og þá jafnframt að festa sig í sessi hér á landi. Jafnframt bendir þetta til þess að eftirspurn eftir vinnuafli í fleiri atvinnugreinum sé nú sinnt af erlendu starfsfólki en áður var.