Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi nam 4,5 milljörðum króna í samanburði við 6,8 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Arðsemi eigin fjár á fjórðungnum var 13,5% en 22,7% á sama tíma 2012. Eiginfjárhlutfall bankans eftir fyrstu sex mánuði var 24,3% sem er það sama og í árslok 2012.

VB Sjónvarp ræddi við Höskuld Ólafsson bankastjóra.