Ásta H. Bragadóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs hefur sagt starfi sínu lausu hjá sjóðnum. Ásta mun hefja störf á öðrum vettvangi á næstu vikum en nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar.