Atvinnuleysi í mars mældist 6,8% samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Í mars 2012 mældist atvinnuleysi 7,5%. Fjöldi atvinnulausra í mars í ár var 12.300, en í sama mánuði í fyrra voru 13.400 atvinnulausir.

Alls voru 167.100 manns starfandi og 12.300. Atvinnuþátttaka mældist 79,3%, hlutfall starfandi 73,9% og atvinnuleysi var 6,8%, eins og áður segir. Atvinnuleysi í mars 2013 var 7,4% á meðal karla miðað við 9% í mars 2012 og meðal kvenna var það 6,2% miðað við 5,9% í mars 2012.

Árstíðaleiðréttur fjöldi fólks á vinnumarkaði í mars 2013 var 183.700 eða 80,6% atvinnuþátttaka en var 181.900 í febrúar 2013 eða 80,4%. Fjöldi atvinnulausra í mars 2013 var 11.700 eða 6,4% en var 8.500 eða 4,7% í febrúar 2013. Fjöldi starfandi í mars 2013 var 171.900 eða 75,5% en var 173.400 eða 76,7% í febrúar 2013. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu jókst atvinnuleysi því um 1,7 prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi minnkaði um 1,2 prósentustig.