Atvinnuleysisbætur hækka frá og með 1. júní 2011. Grunnatvinnuleysisbætur verða 161.523 krónur á mánuði í stað 149.523 krónur og hækka því um 12.000 kr. sem svarar til krónutöluhækkunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta hækkar einnig og verður að hámarki kr. 254.636 á mánuði. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Þá verður greidd út eingreiðsla til þeirra atvinnuleitenda sem hafa þegið atvinnuleysistryggingu á tímabilinu 20. febrúar til 19. maí síðasliðinn. Þeir einstaklingar sem hafa verið að fullu tryggðir á tímabilinu munu fá greiddar kr. 50.000 í eingreiðslu. Atvinnuleitendur sem eru hlutfallslega tryggðir eða hafa ekki staðfest atvinnuleit á öllu tímabilinu 20. febrúar til 19. maí sl. fá greitt hlutfallslega við bótarétt og lengd atvinnuleitar. Eingreiðslan verður greidd 10. júní.