Á vegum breska blaðsins The Daily Telegraph stendur nú yfir val á fallegasta bíl allra tíma.

Valið fer fram á netinu og nú hefur þar birst listi yfir 100 fallegustu bílana að mati lesenda vefsins.

Það kemur kannski engum á óvart að breskir bílar eru í hávegum hafðir hjá lesendum The Daily Telegraph enda þykir hverjum sinn fugl fagur.

Fljótt á litið virðast ítalskir bílar einnig gera það gott en síður bandarískir, hvað sem veldur!

Þeim til hugarhægðar má nefna að einnig fer fram val á ljótasta bílnum og þar má einnig finna bíla sem aldrei hafa farið í framleiðslu.