Fyrirtækið Icewear hefur hafið framleiðslu á vélprjónuðum lopapeysum í verksmiðju sinni í Vík í Mýrdal. Peysurnar eru úr léttlopa og prjónaðar í vélum sem nýverið voru fluttar til landsins og eru vélarnar þær einu hérlendis sem ráða við að prjóna úr lopa, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Nýju prjónavélarnar eru frá þýska framleiðandanum Stoll en starfsfólk verksmiðjunnar í Vík sótti námskeið í meðferð þeirra hjá framleiðandanum í borginni Reutlingen sem er 40 kílómetra norðan við Stuttgart. Sérfræðingar frá Stoll sáu um uppsetningu vélanna í Vík og þjálfuðu starfsfólkið í notkun þeirra.

Icewear opnaði sína fimmtu verslun í sumar á Akureyri. Fyrirtækið rekur einnig verslun í Vík í Mýrdal og þrjár verslanir í Reykjavík, á Skarfabakka, í Bankastræti og Fákafeni.