Stjórn Icelandair Group leggur til að arður að 2.150 milljónum króna verði greiddur til hluthafa á árinu 2014. Félagið hagnaðist um 71 milljón Bandaríkjadala eða 8,2 milljarða króna. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir félagið hafa nýtt mörg tækifæri sem hafi gengið vel upp.

VB Sjónvarp ræddi við Björgólf eftir uppgjörsfund félagsins í morgun.