Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir Icelandair ekki orðið svo stórt félag að það komi niður á þróun annarra flugfélaga hér á landi. Hann segir umræðuna undanfarna daga skrýtna og undrast ákvörðun Wow air að taka ekki þeim afgreiðslutímum sem félaginu var úthlutað á Keflavíkurflugvelli.

VB Sjónvarp ræddi við Björgólf eftir uppgjörsfund félagsins í morgun.