Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,12% í dag og endaði í 1.645,24 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 25,50%.

Gengi bréfa Össurar, TM og VÍS hækkuðu um 4,26%, 0,98% og 0,60% en öll þessi félög lækkuðu í gær. Þá lækkaði gengi bréfa N1 um 1,29% og Eimskipa um 0,41%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 971 milljónum króna og var veltan mest í viðskiptum með bréf Haga uppá 285 milljónir en gengi þeirra hækkaði um 1,09% í dag. Hlutabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,1% í dag og skuldabréfavísitala þeirra lækkaði einnig eða um 0,4%.