Dótturfélag Dagsbrúnar, Daybreak Acquisitions Limited, hefur fengið skuldbindandi samþykki frá hluthöfum Wyndeham Press Group PLC, keypt á markaði eða gert samning um kaup á 45.131.335 hlutum í Wyndeham. Eignahlutur Daybreak er því um 86,77% af útgefnu hlutafé í Wyndeham, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Wyndeham Press sérhæfir sig í útgáfu fagtímarita og gefur út um 600 tímarit. Landsbankinn aðstoðaði Dagsbrún við gerð kauptilboðsins og sér um fjármögnun.

Fyrirtækið, sem er skráð í kauphöllina í London, er metið á 80 milljónir punda (9,96 milljarðar íslenskra króna).

Tilboðið er háð er þeim skilyrðum sem greint var frá í yfirtökutilboði til hluthafa þann 24. mars 2006, hefur verið framlengt um 7 daga. Hluthafar hafa frest til 9. maí til að samþykkja tilboðið.