Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 4,8% meiri en í mars 2010. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 19,0% miðað við sama tímabil 2010, sé hann metinn á föstu verði. Hagstofan birtir í dag gögn um fiskafla.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 118.185 tonnum í mars 2011 samanborið við 119.293 tonn í mars 2010.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 5.500 tonn frá mars 2010 og nam rúmum 44.600 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 23.900 tonn, sem er aukning um 1.200 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam rúmum 7.000 tonnum sem er um 900 tonnum minni afli en í mars 2010. Karfaaflinn dróst saman um 5.000 tonn samanborið við mars 2010 og nam rúmum 4.200 tonnum. Um 3.900 tonn veiddust af ufsa sem er nær sama magn og í mars 2010.

Afli uppsjávartegunda nam um 69.100 tonnum, sem er um 3.800 tonnum meiri afli en í mars 2010. Aukningu í uppsjávarafla má rekja til tæplega 68.600 tonna loðnuafla í mars samanborið við 55.200 tonn í mars 2010. Nær enginn kolmunnaafli var hins vegar í marsmánuði, eða 613 tonn, og dróst hann saman um 9.400 tonn frá fyrra ári.

Flatfiskaflinn var rúm 2.900 tonn í mars 2011 og jókst um rúm 300 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 840 tonnum samanborið við 619 tonna afla í mars 2010.