Fjárfestingarfélagið Grettir hefur aukið eignarhlut sinn í Avion Group í 34,37% úr 11,53%, samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar. Dagsetning lokauppgjörs viðskiptanna er 3. nóvember 2006.

Samkvæmt hluthafaskrá verður Grettir næststærsti hluthafinn í Avion Group en Frontline Holding ræður yfir 36,42% hlutafjár.

Þann 29. september var tilkynnt um að Fjárfestingarfélagið Grettir hafi aukið eignarhlut sinn úr 1,04% í 7,13%.

Eigendur Fjárfestingafélagsins Grettis eru: Sund ehf. (49,05%), Sund ehf. er í eigu Gunnþórunnar Jónsdóttur, Jóns Kristjánssonar og Gabríellu Kristjánsdóttur að jöfnu. Ópera Fjárfestingar ehf. (20,6%). Ópera Fjárfestingar ehf. eru eign Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thor Björgólfssonar að jöfnu.
Hansa ehf. ( 28,51%). Hansa ehf. er eign Björgólfs Guðmundssonar. Aðrir hluthafar (1,84%)