Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman á milli vikna í vikunni sem leið. Þannig nam veltan í vikunni 1.360 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.435 milljónir króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 5% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkaði þó örlítið á milli vikna, eftir að hafa hækkað þrjár vikur í röð, og nemur nú 1.498 milljónum króna, samanborið við 1.450 milljónir í vikunni á undan. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta  hækkað um rúmar 240 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 5% á milli ára, en á sama tíma í fyrra stóð fjögurra vikna meðalvelta í stað á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar þó á milli vikna eða um 20 milljónir króna, og nemur nú 1.390 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.422 milljónir króna á viku. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.594 milljónum króna og hefur því dregist saman um 11% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 52 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 56 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 46 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar þó á milli vikna og nam í vikunni 26,2 milljónum króna, samanborið við 25,6 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 29,4 milljónum króna.

Meðalupphæð á hvern samning hafði þokast upp á við síðustu vikur þangað til hún lækkaði í síðustu viku. Í vikunni sem nú er liðin hækkaði meðalupphæðin lítillega á ný eins og sést hér að ofan.