Yfir 60% landsmanna segjast fylgjandi því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi ráðherrunum Árna M. Matthiesen (66,3%), Geir H. Haarde (64,2%) og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur (60,4%).

Nokkuð færri eða 51,8% segjast fylgjandi því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn Björgvin G. Sigurðssyni fyrrverandi viðskiptaráðherra.

Þetta kemur fram í könnun MMR þar sem spurt var hvort þátttakendur væru fylgjandi eða andvígir því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrnefndum ráðherrum vegna refsiverðrar háttsemi þeirra í embættisfærslu sinni á árinu 2008.

Verulegur munur mældist á afstöðu svarenda eftir stuðningi þeirra við stjórnmálaflokka. Þannig voru rétt um þriðjungur sjálfstæðismanna sem sögðust hlynntir málshöfðun gegn einhverjum ráðherranna. Á meðal sjálfstæðismanna voru flestir andvígir málshöfðun gegn Björgvin G. Sigurðssyni eða um 70%.

Þá voru um 60% stuðningsmanna Samfylkingarinnar fylgjandi málshöfðun gegn Árna M. Matthiesen og Geir H. Haarde en undir 40% þeirra sögðust fylgjandi málshöfðun gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin G. Sigurðssyni.

Þá var meirihluti Vinstri-grænna og framsóknarmanna fylgjandi málshöfðun gegn öllum fyrrverandi ráðherrunum fjórum (á bilinu 63%-81% stuðningsmanna Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins sögðust hlynntir málshöfðun).

Þá voru 79% til 93% þeirra sem kváðust styðja aðra stjórnmálaflokka vera fylgjandi málshöfðun gegn ráðherrunum.

Sjá könnunina í heild sinni.